Rauðasandur – Keflavík


Upphaf ferðar er við Lambavatn

Gengið frá Lambavatni að Naustabrekku eftir sléttlendi í u.þ.b. klukkustund. Frá Naustabrekku er haldið eftir gamalli götu um Hyrnur og Kerlingaháls í Keflavík. Í Keflavík verður boðið upp á skoðunarferð á báti undir Látrabjarg, ef veður leyfir. Hvergi sér betur til hrikaleika bjargsins en frá sjó. Farþegar verða settir í land á Naustabrekku eftir skoðunarferðina og þaðan er gengið að Lambavatni. Áætlaður ferðatími 8-9 klst og gangan er öllum fær.

Ferðatími: 8-9 klst

Öllum fær