Selárdalsheiði


Upphaf ferðar er við eyðibýlið Sellátra á norðurströnd Tálknafjarðar

Gengið er að Arnarstapa og þaðan í Krossadal sem var ysta býlið í Tálknafirði. Gengin er forn gata um Selárdalsheiði yfir í Selárdal. Á leiðinni er farið yfir útgerðarsögu og verstöðvar í Tálknafirði og tengsl Tálknfirðinga við Hollendinga fyrr á öldum. Einnig verður farið yfir sögu galdraklerksins séra Páls Björnssonar í Selárdal. Komið af heiðinni við Uppsali þar bjó Gísli, sem kenndur var við þann bæ. Minjar um listamanninn með barnshjartað, Samúel Jónssonar í Brautarholti, verða skoðaðar á heimleið. Ferðin tekur um 9-10 klst og er öllu gönguvönu fólki fær.

Ferðatími: 9-10 klst
Fyrir alla gönguvana