Upphaf ferðar er hjá minjasafni Egils Ólafssonar á Hnjóti
Þátttakendur mæta við minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn, safnið verður skoðað fyrir brottför. Ekið er á einkabílum að minnismerki á Geldingsskorardal um björgun skipbrotsmanna breska togarans Dhoon er strandaði undir Látrabjargi 12.desember 1947. Þaðan hefst gangan, í 350m hæð um brúnir bjargsins. Gengið er eftir fjárgötu mestanhluta leiðarinnar að Bjargtöngum. Á vettvangi verður rakin saga bjargnytja og slysfara í og við bjargið. Á göngunni gefst gott tækifæri til skoðunar lunda, langvíu, stuttnefju og álku, ásamt mörgum öðrum tegundum sjófugla. Gangan er að mestu undanhallt og öllum fær. Frá Bjargtöngum er ekið til baka að Hnjóti.
Ferðatími: 6-7 klst
Öllum fær

















