Kolanámuhringurinn

Surtarbrandsnámur undir Stálfjalli

Upphaf gönguferðar er  tjaldstæði við Melanes á Rauðasandi

Gengið frá Melanesi að Sjöundá þaðan upp Sjöundárdal í Ölduskarð í um 350 metra hæð. Farinn  er  Miðgangur í Stálfjalli að Völlum, þar voru skálar námamanna á vinnslutíma surtarbrandsnámanna 1915 – 1917. Frá Völlum er haldið eftir fjöru um 1 km leið að námunum, sem eru nokkru ofan  fjöru í Stálvík undir Stálfjalli. Farið verður inn í námurnar. Gengin er sama leið tilbaka. Ferðatími er um 10 klst.

Hægt er að sérpanta ferð um Geirlaugarskriður,  leiðin um skriðurnar er erfið, aðeins fyrir fólk  í góðu formi, vant göngu í lausum skriðum  í bröttum klettahlíðum. Athugið að þessi ferð krefst tveggja leiðsögumanna.

Ferðatími: 10 klst
Aðeins fyrir vant göngufólk