Upphaf gönguferðar við akvegarenda við Siglunes á Barðaströnd
Ganga hefst við hið fornfræga eiðibýli Siglunes sem var ysta byggða ból á Barðaströnd, haldið með strönd að Ytranesi, þaðan að Hellisvík. Utan Hellisvíkur taka við sæbrattar skriður Sigluneshlíða að Stálhlein, þar voru hreppamörk Barðastrandar og Rauðasandshreppa. Nokkru vestan við fjöru undir Stálfjalli eru surtarbrandsnámur frá árunum 1915-1917. Farið er inn í námugöngin.
Eftir skoðun námanna er haldið um Geirlaugarskriður að Skor. Síðasti hluti leiðar er um Skorarhlíðar að Sjöundá, þaðan að Melanesi, endastað ferðar.
Veruleg áskorun er í þessari gönguleið, hún er í erfiðum flokki gönguleiða og aðeins fær vel búnu göngufólki í góðu formi. Bátar verða til taks við ströndina til aðstoðar ef á þarf að halda, ef veður leyfir.
Hægt er að velja um 2 heimleiðir, annars vegar um Miðgang í Stálfjalli í Ölduskarð eða um Geirlaugarskriður.
Ferðatími: 13 klst
Nauðsynlegur búnaður: Ennisljós og hjálmur.
Einungis fær vel búnu göngufólki í góðu formi.