Gönguvikan Umfar verður 23 – 30 júní 2012 Margar frábærar gönguleiðir eru í boði alla daga vikunnar, lögð er áhersla á fræðslu um menningu, sögu og náttúru þessa stórbrotna svæðis. Farið er hægt yfir, ferðirnar ættu því að henta flestum sem hafa gaman af útivist og áhuga á menningu, sögu og náttúrufari þessa landshluta. Megin áhersla er lögð á landsvæði tilvonandi þjóðgarðs. Bóka þarf í þessar ferðir fyrir 17. júní. Börn innan 12 ára aldurs fá frítt í ferðir sem eru greindar sem léttar feðir í fylgd ábyggðaraðila . Gönguvikan Umfar er árlegur viðburður á vegum Umfars ehf, leitast er við að halda þátttökugjaldi í lágmarki til að gefa sem flestum tækifæri til þátttöku.
Dagur 1: Laugardagur 23. Júní
Jónsmessunæturganga: Um brúnir Látrabjargs frá Geldingsskorardal að Bjargtöngum.
Tilhögun ferðar: Ganga hefst við bílastæði á Urðarhjalla ofan Geldingsskorardals,. Gengið á götuslóða eftir brúnum bjargsins að Bjargtöngum. Farið yfir sögu Bjargnytja. Sjá Um brúnir Látrabjargs á heimasíðu.
Brottför: Kl. 21 Mæting við minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti
Lengd ferðar: 6-7 klst
Innifalið: Leiðsögn
Flokkur: Frekar létt ferð fyrir flesta lengd 12 km.
Verð á mann: Kr. 3.000
Farkostur: Þátttakendur aka á eigin bílum frá Hnjóti að Geldingsskorardal. Að göngu lokinni verða bílstjórar fluttir frá Bjargtöngum að bílum.
Dagur 2: Sunnudagur 24. Júní
Ævintýraferð: Sjöundá, Skorarhlíðar í surtarbrandsnámurnar í Stálvík.
Tilhögun ferðar: Gengið frá tjaldstæði við Melanes að Sjöundá, um Sjöundárdal í Ölduskarð. Farið er um Miðgang að Völlum, þaðan eftir fjöru að surtarbrandsnámunum í Stálvík. Farin er sama leið til baka. Ef aðstæður eru góðar verður gengið um Geirlaugarskriður, Gren og Skor í bakaleið að Tjaldstæði við Melanes. Sjá Kolanámuhringurinn á heimasíðu.
Brottför: Kl. 10.00 frá Melanesi
Lengd ferðar: 11 klst
Innifalið: Leiðsögn
Flokkur: Aðeins fyrir gönguvant fólk.
Verð á mann: Kr. 6.000
Farkostur: Gengið frá og að bílastæði við Melanes.
Dagur 3; Mánudagur 25 júní.
Gömul þjóðleið: Arnarstapi, Krossadalur, Selárdalsheiði og Selárdalur.
Tilhögun ferðar: Ganga hefst á bílastæði á vegarenda við Sellátra í Tálknafirði og endar við byggingar Samúels Jónssonar á Brautarholt í Selárdal. Sjá Selárdalsheiði á heimasíðu.
Brottför: Kl. 11.00
Lengd ferðar: 8 – 9 klst
Innifalið: Leiðsögn.
Flokkur: Fyrir gönguvant fólk.
Verð á mann: Kr. 3.000
Farkostur: Komið á einkabílum að Sellátrum í Tálknafirði. Hægt er að útvega flutning á fólki frá Selárdal í Arnarfirði til baka að bílum við Sellátra í Tálknafirði. Greiðist sérstaklega, panta þarf flutning við staðfestingu á þátttöku í ferðina.
Dagur 4; Þriðjudagur 26 júní.
Sögurölt: Sögurölt um Kollsvík.
Tilhögun ferðar: Ganga hefst við bæinn Kollsvík. Í upphafi eru gamlar verbúðarminjar Kollsvíkurvers skoðaðar, Gengið með strönd vestur yfir víkina að Láganúpi. Gengið eftir akvegi til baka að bílum.
Brottför: Kl. 17.00
Lengd ferðar: 2 – 3 kls
Innifalið: Leiðsögn.
Flokkur: Fyrir flesta.
Verð á mann: Kr. 1.000
Farkostur: Komið á einkabílum að Kollsvík. Gengið frá og að einkabílum.
Dagur 5; Miðvikudagur 27 júní.
Gömul þjóðleið: Breiðaskarð frá Trostansfirði í Arnarfirði að Flókalundi í Vatnsfirði.
Tilhögun ferðar: Ganga hefst viðþjóðveg við brú Sunndalsár í Trostansfirði í Arnarfirði, Gengið er yfir Breiðaskarð um Smjördal að Flókalundi í Vatnsfirði. Ef tími vinnst til er hægt að ganga á Ármannsfell frá þessari leið. Sjá Breiðaskarð á heimasíðu.
Brottför: Kl. 11.00 Lengd ferðar: 7 – 8 klst.
Innifalið: Leiðsögn.
Flokkur: Fyrir gönguvant fólk.
Verð á mann: Kr. 3.000
Farkostur: Komið á einkabílum í Trostansfjörð í Arnarfirði. Hægt er að útvega flutning á fólki frá Tungumúla á Barðaströnd til baka að bílum við Foss í Arnarfirði. Greiðist sérstaklega, panta þarf flutning við staðfestingu á þátttöku í ferðina.
Dagur 6; Fimmtudagur 28 júní.
Sögurölt: Menningar og sögustaðurinn Sauðlauksdalur.
Tilhögun ferðar: Ganga hefst á bæjarhlaði í Sauðlauksdal.
Brottför: Kl. 17.00
Lengd ferðar: 3 kls
Innifalið: Leiðsögn.
Flokkur: Fyrir alla.
Verð á mann: Kr. 1.000
Farkostur: Komið á einkabílum í Sauðlauksdal, gengið að og frá einkabílum.
Dagur 7; Föstudagur 29 júní.
Söguferð: Sjöundá og Skor
Tilhögun ferðar: Ganga hefst á tjaldstæði við Melanes. Gengið eftir sjávarbökkum að Sjöundá. Frá Sjöundá er gengið um Söðul að Skor. Stórbrotið landslag. Sjá Sjöundá Skor á heimasíði.
Brottför: Kl. 13.00
Lengd ferðar: 5 – 6 klst.
Innifalið: Leiðsögn.
Flokkur: Fremur létt ganga.
Verð á mann: Kr. 3.000
Farkostur: Gengið frá og að bílastæði við Melanes
Dagur 8: Laugardagur 30. Júní
Áskorunar og ævintýraferð: Siglunes og Skorarhlíðar.
Tilhögun ferðar: Gengið frá vegarenda við Siglunes á Barðaströnd um Siglunes og Skorarhlíðar að Melanesi á Rauðasandi.
Brottför: Kl. 10.00
Lengd ferðar: 11 – 12 klst.
Innifalið: Leiðsögn
Flokkur: Aðeins fyrir gönguvant fólk, vant göngu í bröttum hlíðum.
Verð á mann: Kr. 6.000
Farkostur: Komið á einkabílum að Siglunesi á Barðaströnd . Hægt er að útvega flutning á fólki frá Melanesi á Rauðasandi til baka að bílum við Siglunes á Barðaströnd. Greiðist sérstaklega, panta þarf flutning við staðfestingu á þátttöku í ferðina.