Tálknafjörður


Upphaf ferðar er við Félagsheimili Patreksfjarðar.

Eftir yfirferð um sögu þorpsins á Patretsfirði er gengið upp Litladal, eftir gamlli götu um Lambeyrarháls að Lambeyri í Tálknafirði. Á leiðinni verður rifjuð upp saga Tálknafjarðar og hvalstöðvarinnar á Suðureyri. Ferðatími er 5 klst.  Létt ganga, flestum fær. Ef veður leyfir verður fólk ferjað yfir sundið að Sveinseyrarodda. Góð sundaðstaða er í Tálknafirði, gott er að slaka á í laug að lokinni göngu.

Ferðatími: 5 klst
Flestum fær