Tillaga að 3 daga leiðavali fyrir gönguhópa .
Suðurhluti Vestfjarða er landsvæði fjölbreytilegrar náttúru , þar kallast á hamraskagar og fuglabjörg með gulum skeljasandsströndum í harðbýlum víkum og vogum við ysta haf, lognkyrrir firðir með birkiskógum. Gróðurfar er margbreytilegt, gróðurvana skriðuhlíðar til gróskumikilla birkiskóga með fjölbreyttum undirgróðri. Berjalendur er óvíða gróskumeiri en í birkiskógum Barðastrandar. Víða má finna heitar náttúrulaugar, áður notaðar til þvotta og baða, nú tilvaldar til að hvíla lúin bein eftir göngu um fjöll og dali. Strönd er vogskorin með lognkyrrum fjörðum, víkum, vogum, eyjum og skerjum með fjölbreyttu gróðurfari og fuglalífi. Útsýni frá fjallaleiðum til Snæfellsness og Breiðafjarðar í suðri er víða ægifagurt , til norðurs og austurs sér til fjalla Vestfjarða, Kaldbaks og Glámuhálendis. Suðurfirðir Vestfjarða eru skjólsælir í norðlægum vindáttum, eru þá kjörviðri inn til fjarða og dala undir skjólsælum fjallahlíðum mót suðri.
Umhverfisstofnun hefur gert tillögu að stofnun þjóðgarðs á hluta þessa stórbrotna landssvæðis vegna sérstöðu í náttúrufari , þar ber Rauðasand og Látrabjarg hæst, stærsta fuglabjarg við norðanvert Atlandshaf.
Saga lífsbaráttu genginna kynslóða er stór og minjar um búsetu víða vel sýnilegar. Flest býli á þessu svæði eru komin í eyði, mörg fyrir miðja síðustu öld, fyrir tíma vélknúinna jarðvinnslutæka, eru því tóftir og búsetulandslag víða vel sýnilegt.
Leiðsögufólk Umfars á allt rætur á sunnanverðum Vestfjörðum og þekkir vel sögu sinnar heimabyggðar og vandrataðra leiða um annnes og fjöll milli fjarða og dala.
Tillaga 1:
Þrír dagar um Útvíkur og Látrabjarg. (Um lendur fyrirhugaðs Barðastrandar þjóðgarðs.)
Bækistöð heppileg í Breiðavík, Hnjóti eða Hænuvík. Boðið er uppá mismunandi þjónustu á þessum stöðum. Sjá tengil vesturbyggð á forsíðu.
Dagur 1
Ekið yfir Hænuvíkurháls í Kollsvík. Ganga hefst við eiðibýlið Tröð. Gengið um ströndina, skoðaðar gamlar verminjar, farið yfir byggðasöguna. Gengið vestur víkina að bænum Láganúpi, þaðan er haldið yfir Hnífa, lágan háls til Vatnadals. Frá Vatnadal er gengið yfir Breið niður Flosagjá til Breiðavíkur. Sjá Leið. Um víkur og núpa.
Dagur 2
Ekið frá bækistöð að mynnismerki við Geldingsskorardal um björgun skipbrotsmanna togarans Doohn er strandaði undir Látrabjargi 12 desember 1947. Farið yfir björgunarsöguna á vettvangi. Sjá leið. Um brúnir Látrabjargs.
Dagur 3
Ekið að brún Keflavíkurbjargs. Gengið niður Fuglagötur í Keflavík. Verstöðvarminjar skoðaðar og farið yfir sögu Keflavíkur. Þaðan er haldið upp með Svartagili um Brúðgumaskarð í Breiðavík eða um Hafnarlautir og Mikladal í Örlygshöfn. Eftir staðsetningu Bækistöðvar.
Tillaga 2:
Þrír dagar á Rauðasandi. ( Um lendur fyrirhugaðs Barðastrandar þjóðgarðs)
Bækistöð heppileg á Melanesi á Rauðasandi, þar er gott tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu. Á Patreksfirði er góð aðstaða fyrir ferðafólk á tjaldstæði eða gistiheimilum. Sjá tengil Vesturbyggð á forsíðu.
Dagur 1
Ekið frá bækistöð að Haukabergi á Barðaströnd. Ganga um Sandsheiði til Rauðasands hefst við brú yfir Holtsá. Sjá leið. Sandsheiði.
Dagur 2
Ekið að Melanesi eða gengið frá bækistöð. Boðið er uppá tvo valkosti, annar aðeins fyrir fólk í góðu gönguformi að surtarbrandanámum undir Stálfjalli, hinn valkosturinn er ganga um Sjöundá að Skor. Sjá leiðir. Kolanámuhringurinn og Sjöundá Skor.
Dagur 3
Ekið að bænum Mábergi á Rauðasandi Þaðan hefst ganga um Bjarngötudal og Sauðlauksdalsfjall að Sauðlauksdal. Ef veður er bjart verður gengið á Stakkafell, þaðan er frábært útsýni til allra átta. Komið er í Sauðlauksdal um Stakkagjárdal. Farið yfir merka sögu Sauðlauksdals í ferðalok. Sjá leið. Stakkafell.
Tillaga 3:
Þrír dagar á Barðaströnd. Um gamlar leiðir milli Arnarfjarðar og Barðastrandar.
Bækistöð heppileg í Flókalundi, þar eru gott tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu. Sjá tengil Vesturbyggð á forsíðu.
Dagur 1
Ekið að Fossi í Arnarfirði. Ganga um Fossheiði hefst við brú yfir Fossá. Val er um leið niður til Barðastrandar um Leikvöll að Tungumúla eða um Mórudal, eftir aðstæðum. Sjá leið.Fossheiði .
Dagur 2
Ekið til Trostansfjarðar. Ganga hefst við þjóðveg. Sjá leið. Lækjarheiði.
Dagur 3
Ekið að Hvanntórbrekku á Suðurfjarðarvegi. Ganga hefst við vegbrún. Gengið er vestur með Hornatám að Breiðaskarði milli Klakks og Ármannsfells. Hægt er að ganga á annaðhvort fellið ef tími vinnst til. Hrafnaflóki hefur væntanlega staðið á einhverju fellanna er hann gaf landinu nafn. Haldið er um Breiðaskarð og Smjördal að Flókalundi.
Tillaga 4:
Þrír dagar í Tálknafirði og Ketildölum. Um gamlar leiðir milli Tálknafjarðar, Arnarfjarðar og Patreksfjarðar.
Bækistöð heppileg í Tálknafirði eða Bíldudal, þar eru góð gistiheimili og tjaldstæði . Sjá tengla á forsíðu.
Dagur 1
Ekið að eiðibýlinu Sellátrum í Tálknafirði. Ganga hefst við akvegarenda. Sjá leið. Selárdalsheiði.
Dagur 2
Ekið um Ketildali að Selárdal. Ganga hefst við Brautarholt þar eru listaverk Samúels Jónssonar listamannsins með barnshjartað. Gengið er í Verdali utan Selárdals, skoðaðar verbúðaðtóftir þeirra feðga frá Hrafnseyri sr. Sigurðar Jónssonar og Jóns Sigurðssonar forseta. Ef tími vinnst til verður gengið í Vatnahvilft. Sjá leið. Bíldudalur Selárdalur.
Dagur 3
Ekið að bryggju í Tálknafirð, ef tekst að fá ferjubát yfir sundið að Lambeyri, annars ekið fyrir botn Tálknafjarðar að Lambeyri.Ganga hefst við Lambeyri upp Hvilftir um Lambeyrarháls til Patreksfjarðar. Sjá leið. Tálknafjörður.