Um Umfar

Umfar sérhæfir sig í leiðsögn og ferðaskipulagi í Vestur-Barðastrandarsýslu, bæði leiðsögn um svæðið til hópa og einstaklinga sem ferðast á eigin vegum.

Skipulag ferða, þar sem hver dagleið er hlekkur í gönguferðakeðju um allt svæðið frá Barðaströnd um Rauðasand, Látrabjarg, Útvíkur, Patreksfjörð, Tálknafjörð, Ketildali í Arnarfirði, suðurfirði Arnarfjarðar með endastöð í Vatnsfirði. Með þessari uppsetningu er hægt að rekja sig um svæðið.

Fyrirtækið hyggst taka upp samstarf við ferðaþjónustuaðila á svæðinu og bjóða þjónustu þeirra sem valkost í ferðaskipulagi Umfars ehf. Þar má nefna fólksflutningafyrirtæki, söfn, sjóskoðunarferðir, veitingastarfsemi, gististaði, hótel og tjaldstæði.

Settir eru fram nokkrir valkostir sem hægt er að tengja saman eftir óskum viðskiptavina hverju sinni, mismunandi eftir ferðamáta.