Jóhann Svavarsson
Jóhann er frá Patreksfirði og er svæðisleiðsögumaður um Vestfirði og Snæfellsnes. Jóhann hefur réttindi sem landvörður og staðarvörður frá Hólaskóla og hefur skipulagt ferðir og leiðsagt ferðafólki um suðurhluta Vestfjarða undanfarin sumur. Jóhann þekkir vel til allra aðstæðna á ferðaleiðum þessa landsvæðis, náttúrufari þess og sögu.
Jóhann er formaður stjórnar Umfars ehf.
Sveinn Eyjólfur Tryggvason
Sveinn Eyjólfur eða Eyvi eins og hann er iðulega kallaður er smaladrengur í húð og hár og hefur lóðsað kindur um hverja skriðu og klettanibbu við norðanverðan Breiðafjörðinn. Eyvi er menntaður í svæðisleiðsögn um Vestfirði og Snæfellsnes. Eyvi er kenndur við Lambavatn á Rauðasandi og okkar helsti sérfræðingur á því svæði. Eyvi er einn af örfáum sem gjörþekkir leiðina undir Stálfjall og eftir Skorarhlíðum og hefur verið leiðsögumaðurinn í áskoruninni á Svartfuglinum.
Kjartan Gunnsteinsson
Kjartan er uppalinn á Geitagili í Vesturbyggð og þekkir vel þetta landssvæði. Kjartan er menntaður svæðisleiðsögumaður um Vestfirði og Dali.Hann hefur skipulagt og staðið fyrir ýmsum jeppaferðum um hálendi Íslands bæði að sumri og vetri til.
Kjartan er stjórnarmaður í Umfari ehf.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Aðalheiður er áhugamanneskja um útivist og hefur ferðast mikið um suðurhluta Vestfjarða undanfarin sumur. Hún starfar við tónlist og hefur meðal annars tekið þátt í tónleikahaldi á Patreksfirði.
Guðjón Bjarnason
Guðjón rekur margrómaða ferðaþjónustu og smáhýsagistingu í Hænuvík við Patreksfjörð. Guðjón er fæddur og uppalinn í Hænuvík og er því gjörkunnugur þessu landssvæði og hefur tekið virkan þátt í skipulagi á ferðaþjónustu í Vesturbyggð.
Gísli Már Gíslason
Gísli er prófessor í líffræði og líklega manna fróðastur um Látrabjarg, lífríki þess og sögu. Gísli hefur verið leiðsögumaður á Svartfuglinum og fyrir Ferðafélag Íslands um Rauðasand, Látrabjarg og útvíkur í ferðum þess undanfarin sumur. Gísli er alinn upp við Látrabjarg og er formaður félags landeigenda Hvallátra.
Gísli Már er stjórnarmaður í Umfari ehf.