Verkefni Umfars ehf. er skipulag ferðar frá upphafi til enda
- Leiðsögn og skipulag ferða.
- Ábendingar um veitingastaði og gististaði. Sérferðir ef óskað er og annað það er tengist heildarskipulagi ferðar.
- Viðskiptavinir geta valið um nokkra kosti í þjónustu.
- Gisting á hóteli eða gistiheimili er ekki innifalið í föstu verði.
- Flutnings á farangri milli áningarstaða, fyrir skipulagða hópa er innifalinn í uppgefnu verði.
- Boðið er uppá skoðunarferð á báti undir Látrabjarg. Bátsferðin er greidd sérstaklega enda er hún ekki á vegum Umfars ehf. Leitað verður tilboða fyrir viðskiptavini, sé þess óskað.
- Starfsfólk Umfars ehf, mun kynna viðskiptavinum aðgerðaráætlanir vegna óvæntra uppákoma, breytinga vegna veðurs, óhappa ýmiskonar og breytinga sem koma óvænt upp vegna utanaðkomandi aðstæðna.